Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 197/2022-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 197/2022

Fimmtudaginn 7. júlí 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 8. apríl 2022, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. febrúar 2022, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 25. júlí 2021 og var umsókn hennar samþykkt 24. ágúst 2021. Þann 19. janúar 2022 bárust Greiðslustofu Vinnumálastofnunar upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B og þann 7. febrúar 2022 bárust upplýsingar um að ekki hafi náðst í kæranda vegna starfs hjá C. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 9. febrúar 2022, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddum störfum. Skýringar bárust frá kæranda samdægurs. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. febrúar 2022, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Frekari skýringar bárust frá kæranda þann 1. mars 2022 og aftur þann 23. mars 2022. Í kjölfar endurupptöku Vinnumálastofnunar á máli kæranda í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 var fyrri ákvörðun stofnunarinnar staðfest þann 30. mars 2022.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 8. apríl 2022. Með bréfi, dags. 12. apríl 2022, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Sú beiðni var ítrekuð 23. maí 2022. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 30. maí 2022 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. júní 2022. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi hafnað fyrsta og eina starfstilboðinu sem henni hafi boðist. Eftir að hafa hafnað umræddu starfi hafi bótaréttur kæranda verið felldur niður í tvo mánuði. Henni hafi verið boðin vinna á leikskóla í B en hafi hafnað starfinu með eftirfarandi skýringum.

Fjölskyldan sé með ungt barn og maki kæranda ferðist mikið vegna vinnu sinnar. Það gangi ekki upp fyrir kæranda að vinna í öðru sveitarfélagi og þurfa að treysta eingöngu á almenningssamgöngur. Hún sé ekki með bíl til umráða og því sé tímaramminn sem hún hafi til að sækja barn þeirra úr vistun eftir vinnu ekki nægjanlegur. Þá geti veðrið orðið slæmt og stundum orðið ófært eða ferðir felldar niður og það gangi ekki upp þegar hún sé að vinna í B og sé með barn á D. Maki kæranda sé í óreglulegri vinnu og því sé ekki alltaf hægt að treysta á að hann geti sótt barnið þegar eitthvað komi upp á. Það sé því ekki æskilegt að vinna ekki í sama sveitarfélagi og barnið sé í vistun á meðan aðstæður séu með þessum hætti.

Eftir skýringar kæranda standi Vinnumálastofnun enn fast á sínu og ákvörðun stofnunarinnar um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði standi. Hún vilji taka það fram að þetta sé eina vinnan sem henni hafi boðist og þar með sú eina sem hún hafi hafnað. Hún sé tilbúin að vinna en eins og hún hafi tekið fram þurfi hún að vinna á D vegna aðstæðna.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 25. júlí 2021. Með erindi, dags. 24. ágúst 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og bótaréttur ákveðinn 100%. Þann 21. desember 2021 hafi ferilskrá kæranda verið send á C. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 7. febrúar 2022 þar sem hafi komið fram að kærandi hafi hafnað starfinu. Þá hafi ferilskrá kæranda einnig verið send á B þann 11. janúar 2022. Atvinnurekandi hafi svarað tillögu að starfsmanni þann 19. janúar 2022 og þar hafi komið fram að kærandi hafi hafnað starfinu.

Með erindi, dags. 9. febrúar 2022, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á störfum hjá C og B. Í erindi til kæranda hafi verið vakin athygli á því að höfnun á atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti valdið biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga eða missi bótaréttar með vísan til 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skýringar hafi borist frá kæranda samdægurs. Þar segi að starfið hafi ekki hentað vegna staðsetningar vinnustaðar þar sem hún hafi ekki bíl til umráða.

Með erindi, dags. 21. febrúar 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að skýringar hennar á höfnun atvinnutilboðs hafi ekki verið metnar gildar og að henni bæri að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 1. mars 2022 hafi kærandi óskað eftir rökstuðningi vegna ákvörðunar stofnunarinnar. Með beiðni um rökstuðning hafi einnig komið fram að hún hefði einungis hafnað starfi hjá B en C hafi aldrei haft samband við hana til að bjóða henni vinnu. Rökstuðningur stofnunarinnar hafi verið birtur kæranda þann 21. mars 2022. Þann 23. mars 2022 hafi frekari skýringar borist frá kæranda ásamt beiðni um endurupptöku. Þar hafi kærandi greint frá því að þar sem hún væri með ungt barn og maki hennar þyrfti að ferðast mikið vegna vinnu sinnar gengi ekki upp að taka starfi í öðru sveitarfélagi. Sá tímarammi sem hún hefði til að sækja barn sitt á leikskóla þegar maki gæti ekki sótt barnið væri ekki nægjanlegur. Kærandi vísi til erfiðrar færðar á milli D og B yfir vetrartímann og að óæskilegt sé að starfa ekki í sama sveitarfélagi og barnið sé í vistun. Þann 30. mars 2022 hafi kærandi verið upplýst um að mál hennar hafi verið tekið fyrir að nýju með tilliti til nýrra gagna og að það væri mat stofnunarinnar að staðfesta bæri fyrri ákvörðun frá 18. febrúar 2022, enda hefði hún að geyma efnislega rétta niðurstöðu í málinu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 1. mgr. 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá C og B. Ágreiningur í máli þessu snúi meðal annars að því hvort skýringar kæranda séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað störfum hjá C og B. Kærandi hafi gefið skýringar á höfnun á atvinnutilboði til Vinnumálastofnunar og í kæru til úrskurðarnefndarinnar. Skýringar kæranda lúti einkum að fjarlægð frá heimili og að hún hafi ekki bíl til umráða. Þá gangi það ekki upp að vera með barn á leikskóla á D þegar hún þurfi að sækja vinnu í B, einkum vegna tímaramma og samgangna yfir vetartímann. Að mati Vinnumálastofnunar geti atvinnuleitendur almennt ekki hafnað starfi á þeim forsendum að þeir hafi ekki bíl til umráða og geti því ekki komist á milli staða. Sér í lagi þegar um sé að ræða reglulegar almenningssamgöngur á milli starfsstöðvar og heimilis.

Samkvæmt könnun Vinnumálastofnunar sé lögheimili kæranda í tæplega 20 kílómetra akstursfjarlægð frá B. Vinnumálastofnun meti sem svo að heimili kæranda og heimilisfang starfstöðvar B sé innan sama atvinnusvæðis, enda myndi önnur niðurstaða takmarka verulega atvinnukosti hennar. Í því samhengi verði að horfa til þess að ekki sé óeðlilegt að íbúar með lögheimili á D sæki sér vinnu í B. Þá séu reglulegar strætósamgöngur fyrir hendi á milli B og D. Í ljósi skilyrða laga um atvinnuleysistryggingar um að atvinnuleitandi þurfi að vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi verði ekki fallist á að virk atvinnuleit kæranda nái einvörðungu til vinnustaða á D.

Með vísan til framangreindra sjónarmiða sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á störfum geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar og að kærandi skuli sæta biðtíma í tvo mánuði frá ákvörðunardegi á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í fyrirliggjandi samskiptasögu kemur fram að ferilskrá kæranda hafi verið send á C þann 21. desember 2021. Þann 7. febrúar er skráð í samskiptasöguna að fyrirtækið hefði ekki náð í kæranda. Í greinargerð til úrskurðarnefndarinnar vísaði Vinnumálastofnun meðal annars til þess að fyrir lægi að kærandi hefði hafnað starfi hjá C. Kærandi hefur gefið þær skýringar að fyrirtækið hafi ekki haft samband við kæranda og því ekki boðið henni starf. Af gögnum málsins verður ekki ráðið, svo óyggjandi sé, hvort kæranda hafi sannanlega verið boðið starf hjá C og hún hafnað því eða hvort hún hafi ekki sinnt atvinnuviðtali. Hins vegar er óumdeilt að kærandi hafnaði starfstilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur gefið þær skýringar að hún sé ekki með bíl til umráða og sé því að leita að starfi á D þar sem hún sé búsett.

Samkvæmt 2. málsl. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu. Að mati úrskurðarnefndarinnar er fjarlægðin á milli heimilis kæranda á D og B ekki slík að vinnan teljist fjarri heimili hennar í skilningi 2. máls. 4. mgr. 57. gr. laganna. Þá liggur fyrir að kærandi getur nýtt sér almenningssamgöngur til þess að komast til og frá vinnu. Því telur úrskurðarnefndin að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

Úrskurðarnefndin bendir á að í 1. mgr. 13. gr. laganna er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr. en í því felst meðal annars að vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sbr. e. lið 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 21. febrúar 2022, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum